,,Það er alltaf gaman að vinna leiki og þetta var þokkalegt í dag. Ég er ánægður með góðan sigur," sagði Hermann Hreiðarsson þjálfari ÍBV við Fótbolta.net eftir 1-0 sigur á Víkingi Ólafsvík í Lengjubikarnum í dag.
David James var við hlið Hermanns á bekknum hjá ÍBV í dag en hann hefur átt í viðræðum um að gerst spilandi aðstoðarþjálfari hjá liðinu.
James kíkti á aðstæður í Vestmanneyjum um helgina og það skýrist á næstu dögum hvort hann semji við Eyjamenn eða ekki.
,,Honum leist mjög vel á. Það líst öllum vel á allt í Vestmannaeyjum," sagði Hermann.
,,Þetta lítur ágætlega út. Það er ekkert alveg klárt, hann er með ákveðnar skuldbindingar sem við erum að bíða eftir. Það verður að gerast á næstu dögum, það er lykilatriði."
ÍBV er á leið í æfingaferð til Englands þar sem liðið spilar meðal annars við Portsmouth og varalið Bournemouth en James mun taka þátt í þeirri ferð að hluta ef hann semur við ÍBV.
Gæti fengið frekari liðsstyrk:
Hermann er einnig að leita að frekari liðsstyrk fyrir sumarið. ,,Já, það er stefnt að því. Það eru alls ekkert margir leikmenn. Það kemur bara í ljós, það er ekkert hægt að segja um það."
Hermann er í sínu fyrsta starfi sem þjálfari og hann er spenntur fyrir sumrinu.
,,Ég hef haft mjög gaman af þessu hingað til og ég er fyrst og fremst spenntur. Þetta á eftir að verða gaman hjá okkur, það er alveg á hreinu."
Kemur sér í form í júlí:
Hermann hefur ekki spilað með ÍBV í vetur en hann fékk þó leikheimild með liðinu á dögunum.
,,Maður fer að koma sér í form í júlí. Fyrsti leikur verður þá, rétt fyrir þjóðhátíð," sagði Hermann léttur í bragði að lokum.
Hér að ofan má sjá viðtalið við Hermann í heild sinni.























