Fotbolti.net
01.04.23 - 11:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Havertz: Erfitt að segja nei við Bayern

Havertz: Erfitt að segja nei við Bayern
Canon

Mynd: EPA

Kai Havertz framherji Chelsea hefur verið orðaður við Bayern Munchen undanfarið en hann hefur tjáð sig um orðróminn.

Þessi 23 ára gamli Þjóðverji hefur ekki náð að sýna sitt rétta andlit frá því hann gekk til liðs við Lundúnarliðið árið 2020 frá Bayer Leverkusen.

„Bayern er almennt risastórt félag og það er erfitt að segja nei við það sem þýskur leikmaður. Markmiðið mitt hefur þó alltaf verið að spila erlendis, á Englandi eða Spáni," sagði Havertz.

Havertz hefur skorað 7 mörk í 26 leikjum í úrvalsdeildinni á þessari leiktíð en Chelsea hefur verið langt frá sínu besta.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.