32-liða úrslitin í Mjólkurbikarnum fara fram um komandi helgi og eru þrír Bestu deildar slagir í umferðinni.
Þór tekur á móti FH í Boganum, Fram mætir Víkingi í Úlfarsárdal og KR fær Val í heimsókn í Vesturbæinn.
Í fyrstu tveimur leikjunum eru leikmenn hjá heimaliðunum á láni frá gestaliðinu. Bjarni Guðjón Brynjólfsson er lánsmaður hjá Þór frá FH og Atli Þór Jónasson er á láni hjá Fram frá Víkingi.

Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, staðfestir í samtali við Fótbolta.net að ekkert ákvæði sé í lánssamningi Bjarna Guðjóns. „Við lánuðum hann svo hann fengi meiri spiltíma, vildum ekki koma í veg fyrir að hann fengi að spila leiki," segir Davíð.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er ákvæði í lánssamningi Atla Þórs. Það er ekki hægt að banna honum að spila gegn Víkingi en Fram yrði að greiða Víkingi væna summu ef hann kemur við sögu í leik á móti þeim í sumar. Það verður því að teljast ólíklegt að hann komi við sögu á laugardaginn.