Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   mið 01. apríl 2026 12:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hin hliðin - Örvar Logi Örvarsson (Stjarnan)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óli Valur velkominn í Garðabæinn.
Óli Valur velkominn í Garðabæinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tómas kann að æsa.
Tómas kann að æsa.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Meiddist en tók að sér flaggið.
Meiddist en tók að sér flaggið.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fallegt hjarta.
Fallegt hjarta.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Hann þarf að hætta að pæla svona mikið í útlitinu
Hann þarf að hætta að pæla svona mikið í útlitinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fólk heldur oft að hann sé einhver harðjaxl
Fólk heldur oft að hann sé einhver harðjaxl
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Örvar Logi Örvarsson er vinstri bakvörður sem uppalinn er hjá Stjörnunni. Hann lék sína fyrstu meistaraflokksleiki með KFG 2021, spilaði á láni með Grindavík hluta af tímabilinu 2022 og var kominn í stórt hlutverk hjá Stjörnunni 2023.

Hann á að baki einn U21 landsleik og á síðasta tímabili lék hann alla 27 leiki Stjörnuliðsins. Í dag sýnir Örvar á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Örvar Logi Örvarsson

Gælunafn: Örri eða Ölli

Aldur: 22 ára

Hjúskaparstaða: happily married

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Það var við Fram í úlfarsárdal 2022. Fékk alvöru bestu deildar reality check þar.

Uppáhalds drykkur: Moscow Mule er unplayable

Uppáhalds matsölustaður: Mathús Garðabæjar #Loyal

Uppáhalds tölvuleikur: Prime Fortnite var rosalegur, núna er ég of mature fyrir tölvuleiki.

Áttu hlutabréf eða rafmynt: Já en maður deilir því nú ekkert, hlusta bara á Andra Rúnar.

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Breaking Bad

Uppáhalds tónlistarmaður: Haukur Brink á tiktok

Uppáhalds hlaðvarp: Chess after dark

Uppáhalds samfélagsmiðill: Slappið hefur komið svo sterkt inn

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Viðskiptablaðið

Fyndnasti Íslendingurinn: Pétur Jóhann, Stjörnumaður!

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Út, er mættur!

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Klassískt að segja breiðablik

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Jónatan Ingi alltaf erfiður

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Dóri Emils í yngri flokkum og svo Jölli núna.

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Tómas Orri Almarsson, KFG legend. Hann kann að æsa.

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: Pabbi

Sætasti sigurinn: Þegar ég skoraði í úrslitaleik á Rey cup

Mestu vonbrigðin: 2-1 tap í úrslitum á Gothia cup, erfitt að taka því.

Uppáhalds lið í enska: Liverpool

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Tek Óla Val heim

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Bjarki Hrafn Garðarsson

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Guðmundur Baldvin

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Objectifiya ekki konur, galin spurning!

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Messi

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Fá golden goal aftur í boltann.

Uppáhalds staður á Íslandi: Siglufjörður.

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Já ég hef eitt gott. Sigurður Gunnar var sem sagt hræðilega meiddur og þurfti börur til að taka sig út af, maður var farinn að hugsa það versta út frá öskrunum… Förum svo inn í seinni hálfleikinn og viti menn, þá er Sigurður mættur að leysa mann af sem línuvörður.

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Nei trúi ekki á svona vitleysu.

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Já fylgist mikið með golfinu og pílunni, svo playoffs í körfunni hérna heima.

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Mizuno.

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: Tungumálin voru stundum að flækjast fyrir mér.

Vandræðalegasta augnablik: Þegar ég mætti brotinn í andlitinu á æfingu eftir landsleikjafrí.

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Býð Gumma Baldvin, Danna Finns og Jón Hrafn, þá verða málin rædd.

Bestur/best í klefanum og af hverju: Sindri fyrir að vera með fallegasta hjarta á plánetunni.

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Hendi Hauk Brink í Love is blind, hann þarf að hætta að pæla svona mikið í útlitinu.

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Pabbi minn heitir ekki Örvar.

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Gummi Kri er algjört blóm, fólk heldur oft að hann sé einhver harðjaxl.

Hverju laugstu síðast: Einhverju í gær

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Upphitun

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Hvet alla á að mæta á völlinn í sumar og hafa gaman með okkur. Áfram Stjarnan!
Slapp
banner
banner