Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   mið 01. apríl 2026 10:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Svona var byrjunarlið Ítalíu í síðasta leik liðsins á HM
Suarez beit Chiellini.
Suarez beit Chiellini.
Mynd: EPA
Marki Balotelli gegn Englandi fagnað.
Marki Balotelli gegn Englandi fagnað.
Mynd: EPA
Ítalir í sárum í gær.
Ítalir í sárum í gær.
Mynd: EPA
Ítalía missti í gær af sæti á HM í sumar með því að tapa gegn Bosníu og Hersegóvínu í vítaspyrnukeppni en liðin mættust í úrslitaleik í umspilinu.

Ítalir klikkuðu úr tveimur vítaspyrnum á meðan heimamenn í Bosníu og Hersegóvínu nýttu öll sín víti.

Þetta er þriðja mótið í röð sem Ítalía missir af. Síðast spilaði Ítalía, sem varð heimsmeistari 2006, á HM 2014 og datt út í riðlakeppninni. Ítalía tapaði gegn Úrúgvæ í lokaleik riðlakeppninnar 2014, Diego Godin skoraði sigurmarkið fyrir Úrúgvæ en í sama leik beit úrúgvæski sóknarmaðurinn Luis Suarez ítalska varnarmanninn Giorgio Chiellini og fékk Suarez fjögurra mánaða bann.

Ítalía vann England 1-2 í fyrsta leik riðlakeppninnar 2014 og skoraði Mario Balotelli síðasta mark Ítalíu á HM. Liðið tapaði gegn Kosta Ríka í leik tvö.

Það að Ítalíu hafi mistekist að fara á HM þrisvar sinnum í röð er mjög sérstakt, sérstaklega þar sem liðið varð Evrópumeistari árið 2021.

Byrjunarliðið 2014 gegn Úrúgvæ
Gianluigi Buffon (c)
Giorgio Chiellini
Leonardo Bonucci
Andrea Barzagli
Mattia De Sciglio
Claudio Marchisio (fékk rautt)
Andrea Pirlo
Marco Verratti
Matteo Darmian
Ciro Immobile
Mario Balotelli

Byrjunarliðið í gær gegn Bosníu og Hersegóvínu
Gianluigi Donnarumma (c)
Gianluca Mancini
Alessandro Bastoni (fékk rautt)
Riccardo Calafiori
Matteo Politano
Nicolo Barella
Manuel Locatelli
Sandro Tonali
Federico Dimarco
Moise Kean
Mateo Retegui
Slapp
banner