Fotbolti.net
01.07.12 - 10:45
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Clarence Seedorf til Botafogo (Staðfest)

Clarence Seedorf til Botafogo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hollenski snillingurinn Clarence Seedorf hefur samið við brasilíska liðið Botafogo til næstu tveggja ára.
Seedorf, sem er 36 ára gamall hefur undanfarinn áratug leikið með AC Milan á Ítalíu, en þar vann hann allt sem hægt er að vinna og er ferillinn hans svo sannarlega glæsilegur. Hann vann ítölsku deildina tvisvar sinnum og Meistaradeild evrópu tívegis einnig, svo eitthvað sé nefnt.

Samningur hans við félagið rann út í sumar og ákvað hann því eins og margir aðrir eldri liðsfélagar hans að finna sér nýtt lið, en hann hafði verið sterklega orðaður við ensku úrvalsdeildina.

Hann hefur þó fundið sér félag, en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við brasilíska liðið Botafogo. Það kemur þá fáum á óvart, en hann á hús í Brasilíu og hafði alltaf ætlað sér að eyða tíma sínum þar og síðustu dropum ferilsins.

Heimild: Soccerway

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.