Fotbolti.net
01.07.12 - 13:23
Hafliði Breiðfjörð

George McCartney til West Ham (Staðfest)

McCartney í leik með West Ham.

McCartney í leik með West Ham.

Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar West Ham United í ensku úrvalsdeildinni hafa gengið frá kaupum á George McCartney leikmanni Sunderland sem hefur gert tveggja ára samning við félagið.
McCartney sem er 31 árs gamall er að snúa aftur til West Ham þar sem hann var tvívegis áður, fyrst kom hann þangað árið 2006 og sneri líka þangað aftur á síðustu leiktíð sem lánsmaður.

,,Ég er ánægður með að koma aftur til West Ham og í þetta sinn er það endanlegt,\" sagði vinstri bakvörðurin.

Hann er fjórði leikmaðurinn sem West Ham kaupir í sumar. Áður komu markverðirnir Jussi Jaaskelainen og Stephen Henderson og miðjumaðurinn Mohamed Diame.

Lennon er fyrrverandi landsliðsmaður Norður Írlands sem skoraði eitt mark í 71 leik fyrst þegar hann var hjá West Ham. Hann fór til Sunderland árið 2008 og var þar í eina leiktíð og eina á láni hjá Leeds. Hann var svo lánaður til West Ham í ágúst í fyrra og spilaði 43 leiki með liðinu sem vann sér sæti í úrvalsdeildinni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.