01.08.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Camara til Wolves. (Staðfest)
Wolves hefur gengið frá kaupum á Senegalanum Henri Camara. Þessi sóknarmaður kemur frá Sedan í Frakklandi á 1,5 milljónir punda en hann skrifaði undir 4 ára samning við Úlfana. Dave Jones stjóri Wolves segir að Camara komi með hraða í framlínuna og vonast hann einnig til þess að Senegalinn skori fullt af mörkum fyrir félagið á næstu árum.
