01.08.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Freund til Kaiserslautern. (Staðfest)
Steffen Freund er genginn til liðs við Kaiserslautern. Miðjumaðurinn sem hefur leikið með Tottenham seinustu ár skrifaði undir 1 árs samning við Þjóðverjana. Freund mun koma á miðjuna í stað Ciriaco Sforza sem er meiddur. Freund sagði að eftir mjög góðan tíma á Englandi væri hann mjög ánægður með að koma aftur í Bundesliguna.
