01.08.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Machlas til Iraklis FC. (Staðfest)
Gríski framherjinn Nikos Machlas hefur gengið til liðs við Iraklis FC eftir að hafa verið leystur undan samningi hjá Ajax. Þessi þrítugi landsliðsmaður var á láni hjá Sevilla í vetur en náði sér engan vegin á strik og var meira í sviðsljósinu fyrir vesen utan vallar heldur en innan. Hann skrifaði undir 1 árs samning við Gríska liðið.
