01.08.12 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Fannar Freyr og Sigurjón frá ÍA til KA (Staðfest)
Ómar Friðriksson lánaður í Magna

Fannar Freyr Gíslason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fannar Freyr Gíslason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveir leikmenn gengu í raðir KA frá ÍA í gærkvöldi. Það eru þeir Fannar Freyr Gíslason og Sigurjón Guðmundsson, báðir fæddir 1992.
Fannar kemur á lánssamningi út tímabilið en hann er framherji sem er uppalinn hjá Tindastóli. Hann hafði í sumar leikið 9 leiki með liðinu í 1. deildinni á lánssamningi frá Skagamönnum.

„þetta hefur ekki alveg gengi upp hjá mér hingað til , spennandi tímar framundan #NýÁskorun,\" skrifaði Fannar á Twitter í gær.
Sigurjón er vinstri bakvörður sem var valinn besti leikmaður 2. flokks ÍA í fyrra. Hann stefnir á að leika með KA næstu þrjú árin. Í fyrra lék hann þrjá leiki með ÍA í 1. deildinni en var fyrr í sumar lánaður til Kára í 3. deildinni.
Ómar Friðriksson sem lék 17 leiki með KA í 1. deildinni í fyrra hefur verið lánaður til Magna. Ómar er fæddur 1993 og hefur átt erfitt uppdráttar síðan í vetur vegna meiðsla. Magni er í efsta sæti B-riðils 3. deildar og er í harðri baráttu um að komast upp.
KA er í sjötta sæti 1. deildar en stutt er bæði í topp og botn.

Sigurjón Guðmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð