Fotbolti.net
01.08.12 - 06:00
Elvar Geir Magnússon

Leiknir Fáskrúðsfirði fær til sín fjóra (Staðfest)

Alexander Aron Davorsson.

Alexander Aron Davorsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla

Leiknir Fáskrúðsfirði er í harðri toppbaráttu í D-riðli 3. deildarinnar. Liðið ætlar ekki að gefa neitt eftir í þeirri baráttu eins og sýndi sig í gær þegar liðið fékk til sín fjóra leikmenn.
Alexander Aron Davorsson kemur á láni frá Aftureldingu. Alexander er sóknarmaður sem leikið hefur 10 leiki með Mosfellingum í 2. deildinni í sumar og skorað þrjú mörk. Izudin Daði Dervic, þjálfari Leiknis, er fyrrum þjálfari Aftureldingar og þekki Alexander því vel.

Annar sóknarmaður, Kjartan Atli Kjartansson, er kominn frá Árborg. Kjartan hefur skorað 11 mörk í 10 leikjum fyrir Árborg í sumar en liðið á ekki lengur möguleika á að fara upp úr 3. deild.

Ómar Ingi Guðmundsson er fjölhæfur leikmaður sem er kominn í Leikni frá HK. Ómar hefur leikið sex leiki með HK í 2. deildinni í sumar.

Þá er Jóhann Örn Jónsson kominn aftur í raðir Leiknis en hann gekk í raðir Reynis Sandgerði fyrir yfirstandandi tímabil. Hann kemur á lánssamningi út sumarið.
Kjartan Atli í baráttunni.

Kjartan Atli í baráttunni.

Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Ómar Ingi Guðmundsson.

Ómar Ingi Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.