01.08.12 - 06:00
Snorri Helgason
Kristinn Hafliðason með leikheimild fyrir Leikni
Gunnar Wigelund kominn aftur til KB

Kristinn Hafliðason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Hafliðason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Kristinn Hafliðason hefur fengið leikheimild með Leikni. Kristinn er á 37. aldursári og hefur að undanförnu æft með Breiðholtsliðinu sem er sem stendur í botnbaráttu 1. deildarinnar.
Hann hefur ekki leikið fótbolta á alvöru stigi síðan 2007 þegar hann lék með Val en þessi mikli reynslubolti hefur á ferli sínum einnig leikið fyrir KR, ÍBV, Fram og Víking Reykjavík og náð að hampa Íslandsmeistaratitlinum.
Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net er alls ekki víst að Kristinn muni leika fyrir Leiknismenn. Hann ætlar þó að halda áfram æfingum og vera til taks ef á þarf að halda.
Gunnar Wigelund í KB (Staðfest)
Sóknarmaðurinn Gunnar Wigelund hefur verið lánaður úr Leikni yfir í KB sem leikur í 3. deildinni. Gunnar var markakóngur 3. deildar síðasta tímabil og fór svo yfir í Leikni þar sem hann náði ekki að festa sig í sessi.
Gunnar mun halda áfram að æfa með Leikni.
KB hefur skort stöðugleika á yfirstandandi tímabili en á enn möguleika á að bjarga tímabilinu með góðum endaspretti.
KB er varalið Leiknis. Miðvörðurinn efnilegi Skúli Bragason fer öfuga leið, hefur skipt úr KB yfir í Leikni en Skúli er enn á 2. flokksaldri.

Gunnar ásamt Pape Mamadou Faye.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon