Marcus Rashford er ekki bara frábær fótboltamaður, hann er einnig frábær manneskja.
Rashford hefur staðið fyrir söfnun svo börn sem koma úr fátækum fjölskyldum fái ókeypis máltíðir í skólanum. Hann hefur staðið í ströngu í þessari baráttu.
Rashford hefur staðið fyrir söfnun svo börn sem koma úr fátækum fjölskyldum fái ókeypis máltíðir í skólanum. Hann hefur staðið í ströngu í þessari baráttu.
Á dögunum var hann með leik þar sem hann fékk krakka yngri en 16 ára til að leika eftir listir sínar með boltann. Margir hafa sent honum myndbönd og hefur hann svarað mörgum með hvatningarorðum, þar á meðal ungum dreng af Akranesi.
„Þetta er sonur minn Jökull, níu ára gamall. Hann æfir sig allan daginn og vildi taka þátt í þessari áskorun. Hann er mikill aðdáandi þinn," skrifaði Sindri Birgis á Twitter.
Rashford sá þetta og skrifaði: „Yes Jökull." Hér að neðan má sjá þetta.
Yes Jökull 👏🏾
— Marcus Rashford (@MarcusRashford) August 1, 2020
Athugasemdir