Jón Dagur Þorsteinsson spilaði með liði AGF í Danmörku í dag sem mætti Randers í úrvalsdeildinni þar í landi.
Jón Dagur hefur átt betri daga en hann var nýlega rekinn af velli í mikilvægum Evrópuleik AGF sem datt úr keppni.
Landsliðsmaðurinn byrjaði leikinn á heimavelli í dag en var tekinn af velli þegar 72 mínútur voru komnar á klukkuna.
Randers gerði sér lítið fyrir og vann 2-1 útisigur á AGF og kom sér í toppsætið með sjö stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar.
AGF situr í 10. sæti deildarinnar og er án sigurs eftir fyrstu þrjá leikina.
Athugasemdir