Fotbolti.net
21.11.26 - 22:46
Ívan Guðjón Baldursson

De Zerbi um ungstirnið: Býr yfir meiri gæðum en þið haldið

De Zerbi um ungstirnið: Býr yfir meiri gæðum en þið haldið
Canon

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi hefur tekist að snúa herfilegu gengi Tottenham við og var táningur sem skein skært í 2- 0 sigri gegn nýliðum Ipswich Town fyrr í dag.
England: Átján ára leikmaður Tottenham fór á kostum - Chelsea fékk skell á heimavelli
TENGT EFNI

England: Átján ára leikmaður Tottenham fór á kostum - Chelsea fékk skell á heimavelli

Sá heitir Luca Williams-Barnett og er aðeins 18 ára gamall, með 10 mörk í 26 leikjum fyrir unglingalandslið Englands. Williams-Barnett fór á kostum gegn Ipswich og skoraði fyrsta mark leiksins áður en hann komst hársbreidd frá því að leggja upp annað mark. Hann skilaði frábærri frammistöðu í sínum fyrsta byrjunarliðsleik í ensku úrvalsdeildinni.

„Hann er sérstakur leikmaður og þetta kemur mér ekkert á óvart út af því að hann býr yfir meiri gæðum en þið haldið. Hann átti góðan leik og verður að átta sig á því hversu heppinn hann er að spila fyrir topp félag, umkringdur samherjum í hæsta gæðaflokki," sagði De Zerbi.

„Ég lét strákana vita byrjunarliðið í gærkvöldi og ítrekaði fyrir þeim að hjálpa Luca út af því að hann býr yfir gæðum sem geta hjálpað okkur að vinna leikinn. Hann er ungur leikmaður en á sama tíma mjög þroskaður, hann virðist vera eldri en hann er.

„Fyrsta daginn sem ég talaði við Luca þá bað ég hann um tvennt: annars vegar að spila fótbolta eins og hann væri að spila með vinum sínum úti á túni og hins vegar að leggja mikla vinnu á sig án boltans - eins og Dembélé, Raphinha og Yamal gera fyrir sín félagslið. Að mínu mati eru sóknarmennirnir fyrstu varnarmenn liðsins og þeir verða að leggja vinnuna á sig þó að þeir vinni Ballon d'Or verðlaunin og séu ofurstjörnur."


De Zerbi var þá spurður hvort Williams-Barnett sé einstaklega gæðamikill leikmaður á borð við Dembélé og Yamal.

„Já, ég held það. Hann elskar fótbolta og sat nálægt mér í rútunni á leiðinni hingað, ég gat séð hann vera að horfa á YouTube myndbönd af Ronaldinho og Eden Hazard.

„Mér finnst frábært og óvenjulegt að hann hafi verið að horfa á myndbönd af Ronaldinho, Hazard, Neymar og svona leikmönnum bara einum og hálfum klukkutíma fyrir fyrsta byrjunarliðsleikinn í úrvalsdeildinni."
De Zerbi um ungstirnið: Býr yfir meiri gæðum en þið haldið
Canon

Mynd: EPA

De Zerbi um ungstirnið: Býr yfir meiri gæðum en þið haldið
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton10+1922
3Man City11+822
4Liverpool10+418
5Bournemouth11+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Aston Villa11-314
12Newcastle11-313
13Coventry11-812
14Hull City10011
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd10-58
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.