Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 01. desember 2020 18:00
Magnús Már Einarsson
Fufura áfram með Reyni Sandgerði
Fufura í leik í 3. deildinni í sumar.
Fufura í leik í 3. deildinni í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framherjinn Elton Renato Livramento Barros hefur samið við Reyni Sandgerði um að leika áfram með liðinu næsta sumar. Fufura, eins og hann er kallaður, kemur frá Grænhöfðaeyjum en hann lék áður með Selfossi, Haukum og Keflavík.

Fufura er 29 ára gamall en hann hefur alls leikið 118 mótsleiki á Íslandi og skorað í þeim 54 mörk. Í sumar skoraði hann ellefu mörk í sextán leikjum þegar Reynir fór upp úr 3. deildinni.

„Á síðastliðnu sumri átti hann stóran þátt í góðum árangri liðs okkar þrátt fyrir að hafa verið frá vegna meiðsla framan af sumri," segir a Facebook síðu Reynis.

„Fufura hefur fasta búsetu og atvinnu hér á landi, býr hér ásamt eiginkonu og þremur ungum dætrum. Sú yngsta er aðeins 4 daga gömul og óskum við fjölskyldunni innilega til hamingju með litlu prinsessuna ❤"

„Sjórn ksd. Reynis fagnar samkomulaginu og hlakkar til að sjá Fufura áfram í búningi Reynis gera varnarmönnum andstæðinganna lífið leitt árið 2021."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner