Fotbolti.net
01.12.20 - 07:00
Victor Pálsson

Zidane: Hefur engin andleg áhrif á Hazard

Zidane: Hefur engin andleg áhrif á Hazard
Canon

Mynd: Getty Images

Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, viðurkennir að Eden Hazard sé að upplifa erfiða tíma en leikmaðurinn meiddist aftur um helgina gegn Alaves.
Hazard hefur verið afar óheppinn hjá Real til þessa en hann kom frá Chelsea í fyrra fyrir 150 milljónir punda.

Síðan þá hefur Belginn lítið náð að spila en meiðsli hafa sett stórt strik í reikninginn.

„Ég held að þetta hafi engin andleg áhrif á hann, stundum meiðast menn og við tökum því. Hann er sterkur, ég efast ekki um það,"
sagði Zidane.

„Hazard hefur átt erfitt uppdráttar undanfarið. Við munum hjálpa honum að ná bata eins fljótt og hægt er."


„Þetta er flókin staða fyrir Eden því hann hefur ekkert meiðst á ferlinum og nú er hann óheppinn. Hann kemur vissulega til baka sterkari."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.