Fotbolti.net
01.12.21 - 13:49
Elvar Geir Magnússon

Rangnick verður í stúkunni á morgun

Ralf Rangnick.

Ralf Rangnick.

Canon

Mynd: EPA

Búist er við því að Ralf Rangnick, nýr bráðabirgðastjóri Manchester United, verði meðal áhorfenda á Old Trafford annað kvöld þegar liðið mætir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.

Rangnick er að bíða eftir því að fá atvinnuleyfi og mun ekki taka neinn þátt í undirbúningi leiksins. Michael Carrick heldur áfram um stjórnartaumana.
Þrátt fyrir að Rangnick sé ekki kominn með atvinnuleyfi þá getur hann horft á leikinn.

United vonast til að Rangnick geti stýrt liðinu í fyrsta sinn þegar United mætir Crystal Palace á sunnudaginn.

„Ég er ekki með neinar fréttir fyrir ykkur aðrar en þær að verið er að vinna í atvinnuleyfi. Ég stýri liðinu á meðan og vinn að því að gera leikmenn klára fyrir leikinn annað kvöld," sagði Carrick á fréttamannafundi í dag.

Carrick segist ekki hafa rætt við Rangnick ennþá: „Nei. Við höfum ekki fengið tækifæri til þess vegna atvinnuleyfisins. Við höfum bara haldið áfram. Það hefur virkað vel síðustu tvo leiki og gerir það vonandi á morgun."

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Carrick stýrir leiknum á morgun.

Carrick stýrir leiknum á morgun.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.