Fotbolti.net
01.12.22 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fyrrum yfirmaður hjá Arsenal orðaður við Liverpool - Þekkir Klopp vel

Sven Mislintat

Sven Mislintat

Canon

Mynd: Getty Images

Sven Mislintat er á lista hjá Liverpool yfir mögulega arftaka Julian Ward sem hefur gefið út að hann hætti sem yfirmaður fótboltamála hjá félaginu eftir tímabilið.

Florian Plettenberg starfsmaður hjá Sky Sports greinir frá þessu.

Mislintat var áður yfirmaður fótboltamála hjá Arsenal en á ferlinum sínum hjá Lundúnarliðinu keypti hann átta leikmenn en allir hafa þeir yfirgefið félagið.

Mislintat og Jurgen Klopp þekkjast vel en þeir unnu saman hjá Dortmund frá 2008-2015.

Hann er maðurinn á bakvið kaup á leikmönnum á borð við  Robert Lewandoswki, Pierre-Emerick Aubameyang, Mats Hummels, Ousmane Dembele og Shinji Kagawa hjá Dortmund.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.