Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 01. desember 2022 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Selma Sól á eitt af fimm bestu mörkum ársins í Noregi
Selma Sól Magnúsdóttir.
Selma Sól Magnúsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðskonan Selma Sól Magnúsdóttir á eitt af fimm bestu mörkum ársins í norsku úrvalsdeildinni.

Markið skoraði Selma í 2-0 sigri gegn Kolbotn í apríl síðastliðnum. Markið, sem er stórglæsilegt, kom við alvöru íslenskar aðstæður eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan.

Hægt er að kjósa mark Selmu með því að smella á þennan tengil.

Selma, sem er 24 ára miðjumaður, var að klára sitt fyrsta tímabil með Rosenborg eftir að hafa gengið í raðir félagsins frá Breiðabliki. Hún skoraði alls fimm deildarmörk á tímabilinu.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af markinu sem er eitt af fimm bestu mörkum ársins í norsku úrvalsdeildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner