Fotbolti.net
02.03.18 - 15:05
Ívan Guðjón Baldursson

Cavalieri hjá Crystal Palace út tímabilið (Staðfest)

Cavalieri hjá Crystal Palace út tímabilið (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Crystal Palace er búið að tryggja sér brasilíska markvörðinn Diego Cavalieri út tímabilið.

Cavalieri er 35 ára gamall og lék síðast fyrir Fluminense í brasilíska boltanum. Hann á þrjá landsleiki að baki.
Crystal Palace vantar markvörð þar sem Wayne Hennessey er sá eini sem er heill heilsu eftir meiðsli Julian Speroni.

Palace er í fallbaráttunni í enska boltanum, með jafn mörg stig og Swansea sem er í fallsæti á markatölu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.