02.03.18 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
KR lánar Óliver Dag til Gróttu (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

KR er búið að lána hinn efnilega Óliver Dag Thorlacius til Gróttu. Óliver er fæddur 1999 og því á nítjánda aldursári.
Óliver kom við sögu í tveimur leikjum í Pepsi-deildinni í fyrra og einum í Evrópudeild.

Hann er miðjumaður og á að hjálpa Gróttu að komast beint aftur upp úr 2. deildinni eftir að hafa aðeins fengið níu stig í Inkasso-deildinni á síðasta tímabili.
Óliver var á dögunum valinn í æfingahóp U21 árs landsliðsins þar sem leikmenn sem leika á Íslandi æfa saman og undirbúa sig fyrir komandi landsliðsverkefni.