Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 02. mars 2021 19:40
Aksentije Milisic
„Sá Messi aldrei æfa aukaspyrnur"
Mynd: Getty Images
Nelson Semedo, leikmaður Wolves og fyrrverandi leikmaður Barcelona, tjáði sig um Lionel Messi en þeir voru samherjar hjá Barcelona.

Messi er með magnaða tölfræði þegar kemur að aukaspyrnum og oftar en ekki syngur knötturinn í samskeytunum þegar Messi mætir á svæðið.

Semedo segir að það sem er ótrúlegt við þessa aukaspyrnugetu Argentínumannsins, sé það að hann æfði aldrei aukaspyrnur á æfingum.

„Ég sá Messi ekki einu sinni taka aukaspyrnu á æfingu. Við æfðum okkur alltaf í skotum af löngu færi og í aukaspyrnum. Messi tók aldrei aukaspyrnu, fyrir hann er þetta bara náttúrulegt."

Messi hefur verið magnaður fyrir Börsunga á þessu tímabili en hann er markahæsti leikmaðurinn í La Liga með 19 mörk. Næstu á eftir honum er góður félagi hans, Luis Suarez, með sextán.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner