02.04.18 - 20:21
Ívan Guðjón Baldursson
Hasselbaink rekinn frá Northampton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Northampton Town er búið að reka Jimmy Floyd Hasselbaink úr stjórastól félagsins, en hann var ráðinn í september.
Northampton er í fallbaráttu C-deildarinnar og hefur ekki tekist að sigra í síðustu níu leikjum. Liðið er tveimur stigum frá öruggu sæti þegar fimm umferðir eru eftir.

„Okkur þykir leitt að þurfa að láta Jimmy fara því hann gerði sitt besta fyrir félagið. Okkur fannst kominn tími til að breyta um stjóra eftir slakt gengi á tímabilinu,\" sagði Kelvin Thomas, forseti félagsins.
„Þetta eru erfiðir tímar fyrir félagið. Eina sem við getum gert til að bjarga okkur er að setja alla orku í síðustu fimm leiki tímabilsins.\"
Hasselbaink gerði garðinn frægan sem sóknarmaður og lék meðal annars fyrir Leeds, Atletico Madrid og Chelsea á ferlinum. Hann er 46 ára gamall og hefur áður stýrt Royal Antwerp, Burton Albion og QPR.