02.04.19 - 20:59
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Enginn Ronaldo, engin vandræði

Moise Kean skoraði.

Mynd: Getty Images

Moise Kean skoraði.

Mynd: Getty Images
Cagliari 0 - 2 Juventus
0-1 Leonardo Bonucci ('22 )
0-2 Moise Kean ('85 )
0-1 Leonardo Bonucci ('22 )
0-2 Moise Kean ('85 )
Cristiano Ronaldo lék ekki með Juventus í kvöld þegar liðið mætti Cagliari. Hann er frá vegna meiðsla.
Bjartsýni er fyrir því að Ronaldo verði klár í slaginn gegn Ajax í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í næstu viku.
Án Ronaldo lenti Juventus þó ekki í miklum vandræðum gegn Cagliari í kvöld. Leonardo Bonucci og hinn efnilegi Moise Kean skoruðu mörkin í 2-0 sigri. Kean er kominn með fjögur mörk í sex deildarleikjum á tímabilinu.
Juventus er núna með 18 stiga forystu á toppnum. Það er í raun og veru bara tímaspursmál hvenær hægt er að setja (Staðfest) á áttunda Ítalíumeistaratitil Juventus í röð.
Cagliari er í 13. sæti deildarinnar.
Sjá einnig:
Ítalía: Lasagna bjargaði stigi gegn AC Milan