Bjartsýnn varðandi Ronaldo
Massimiliano Allegri, stjóri Juventus, segist bjartsýnn á að Cristiano Ronaldo verði tilbúinn í leikinn gegn Ajax í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í næstu viku.
Ronaldo er frá vegna meiðsla aftan í læri og missir af leik gegn Cagliari á morgun.
„Við erum vongóðir um að hann snúi aftur fyrir leikinn í Amsterdam," segir Allegri.
Ronaldo er frá vegna meiðsla aftan í læri og missir af leik gegn Cagliari á morgun.
„Við erum vongóðir um að hann snúi aftur fyrir leikinn í Amsterdam," segir Allegri.
„Juan Cuadrado verður tilbúinn eftir 7-10 daga. Leonardo Spinazzola er meiddur á hné og verður frá í tvær vikur. Douglas Costa er fínn og verður klár í leikinn gegn Ajax."
Meðal annarra leikmanna sem eru meiddir og verða ekki með Juventus gegn Cagliari á morgun eru Mario Mandzukic og Paulo Dybala.
Juventus er með fimmtán stiga forystu í ítölsku A-deildinni.



