West Bromwich Albion er í öðru sæti Championship deildarinnar og fór að fordæmi margra knattspyrnufélaga með að birta mynd til stuðnings baráttu svartra gegn kynþáttafordómum með myllumerkinu #BlackOutTuesday.
West Brom er sögufrægt félag á Englandi þegar kemur að jafnrétti á milli kynþátta en einn stuðningsmaður félagsins var ósáttur með skilaboðin.
„Aumkunarvert. Ógildið ársmiðann minn. Takk," skrifaði stuðningsmaðurinn og hafa rúmlega 400 manns líkað við færsluna.
West Brom var skjótt að bregðast við með svari sem rúmlega 70 þúsund manns hefur líkað við.
„Þín verður ekki saknað."
#BlackOutTuesday ⬛️ pic.twitter.com/REfZCFkQy6
— West Bromwich Albion (@WBA) June 2, 2020
You won’t be missed.
— West Bromwich Albion (@WBA) June 2, 2020
Athugasemdir