02.07.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Rustu Recber samdi við Barcelona. (STAÐFEST)
Tyrkneski landsliðsmarkvörðurinn Rustu Recber gekk í gær frá félagsskiptum í lið Barcelona. Recber sem er 30 ára gamall hafði verið samningslaus hjá Fenerbahce í síðasta mánuði og samdi við Joan Laporta fyrir forsetakosningarnar hjá Barcelona í júní um að ganga til liðsins ef hann yrði kjörinn. Það gekk eftir og í gær mundaði Recber pennann á Nou Camp.
