Fotbolti.net
02.07.12 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Carlos Cuellar til Sunderland (Staðfest)

Carlos Cuellar til Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur samið við spænska varnarmanninn Carlos Cuellar en hann kemur frítt til félagsins frá Aston Villa.

Þessi þrítugi leikmaður skrifaði undir tveggja ára samning við Sunderland en samningur hans við Aston Villa var útrunninn.
Martin O\'Neill, stjóri Sunderland, þekkir Cuellar vel því hann fékk leikmanninn til Aston Villa árið 2008.

Cuellar lék áður með Osasuna og Rangers en hann getur spilað bæði sem miðvörður og bakvörður.

Hjá Aston Villa skoraði Cuellar samtals þrjú mörk í 123 leikjum á þeim fjórum tímabilum sem hann lék með félaginu.

Heimild: Heimasíða Sunderland

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.