Fotbolti.net
02.07.12 - 13:30
Magnús Már Einarsson

El Ahmadi til Aston Villa (Staðfest)

El Ahmadi til Aston Villa (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur keypt miðjumannin Karil El Ahmadi frá Feyenoord en talið er að kaupverðið sé í kringum tvær milljónir punda.

Þessi 27 ára gamli Marokkómaður skrifaði undir þriggja ára samning við Aston Villa.
El Ahmadi er spenntur fyrir því að fá tækifæri til að spila í ensku úrvalsdeildinni.

,,Ég er mjög spenntur fyrir því að koma hingað í þetta stóra félag og ég hlakka til að spila hér,\" sagði El Ahmadi.

,,Ég er mjög ánægður með að stjórinn og félagið vilji fá mig og ég hlakka til að byrja að æfa aftur.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.