Fotbolti.net
02.07.12 - 15:24
Daníel Freyr Jónsson

Fabio da Silva á láni til QPR (Staðfest)

Fabio da Silva er hér ásamt bróðir sínum Rafael.

Fabio da Silva er hér ásamt bróðir sínum Rafael.

Canon

Mynd: Getty Images

QPR hefur fengið til sín hinn efnilega Fabio da Silva á láni frá Manchester United.
Þessi efnilegi barkvörður á að baki 53 leiki fyrir United í öllum keppnum, en hann verður 22 ára gamall í næstu viku.



Lánssamingur hans hjá QPR gildir út næsta tímabil.



,,Það er frábært tækifæri fyrir okkur að fá á láni góðan, ungan leikmann sem á að baki góða reynslu fyrir toppfélag eins og Manchester United,\" sagði Mark Hughes, stjóri QPR í tilkynningu frá félaginu.



Fabio leikur sem vinstri bakvörður, en tækifæri hans hafa verið af skornum skammti undanfarin ár hjá United þar sem Patrice Evra hefur einokað stöðuna. Hann fær því tækifæri til að sanna sig í ensku úrvalsdeildinni næsta vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.