02.07.12 - 21:00
Daníel Freyr Jónsson
Lazio krækti í Ederson (Staðfest)

Ederson.

Mynd: Getty Images

Ederson.

Mynd: Getty Images
Lazio hefur staðfest komu miðjumannsins Ederson til félagsins á frjálsri sölu.
Ederson hefur verið án félags síðustu vikur eftir að samningur hans hjá Lyon rann út.
Hinn 26 ára gamli Brasilíumaður lék í fjögur ár með Lyon, en þar áður lék hann með Nice.
Hann skrifaði undir 5 ára samning hjá Lazio og mun hann berjast um miðjustöðuna við menn eins og Hernanez, Matuzalem og Christan Ledesma.
Talið er að Ederson muni fá um 1,6 milljón evra á ári í Rómarborg.