Fotbolti.net
02.07.12 - 17:30
Daníel Freyr Jónsson
Ítalska deildin

Isla og Asamoah til Juventus (Staðfest)

Kwadwo Asamoah.

Kwadwo Asamoah.

Canon

Mynd: Getty Images

Juventus hefur gengið frá kaupunum á þeim Mauricio Isla og Kwadwo Asamoah frá Udinese.
Kaupin hafa legið í loftinu í nokkrar vikur en Juventus hefur nú keypt helmingshlut í báðum leikmönnunum.



Nokkrar vikur eru síðan samingar náðust og leikmennirnir stóðust læknisskoðun, en nú hafa öll formsatriði verið kláruð.



Juventus borgaði 9,4 milljónir evra fyrir helmingshlutinn í hinum 24 ára gamla Isla, á meðan 9 milljónir voru greiddar fyrir Asamoah.



Sem hluti af samningnum fór einnig ungstirnið Cristian Pasquato til Udinese.



Fyrr í sumar hafði Juventus einnig fengið til sín Sebastian Giovinco frá Parma og er ljóst að liðið ætlar að láta að sér kveða í Meistaradeildinni, en Juventus fór taplaust í gegnum Serie A í vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.