02.07.12 - 21:30
Daníel Freyr Jónsson
Leon Best til Blackburn (Staðfest)

Leon Best.

Mynd: Getty Images

Leon Best.

Mynd: Getty Images
Framherjinn Leon Best er genginn í raðir Blackburn Rovers í Championship deildinni frá Newcastle United.
Blackburn staðfesti þetta á heimasíðu sinni nú í kvöld, en í morgun spurðist það út að Best væri á leið í læknisskoðun hjá félaginu og er hann önnur kaup félagsins í sumar á eftir Danny Murphy.
Í yfirlýsingu frá félagin stendur að Blackburn hafi greitt Newcastle yfir þrjár milljónir punda fyrir hinn 25 ára gamla framherja, sem skrifaði síðan undir fjögurra ára samning.
Best lék í tvö ár með Newcastle og skoraði hann 10 mörk í 42 leikjum fyrir félagið.
Hann á einnig að baki 7 leiki með írska landsliðinu, en hann komst ekki í hópinn sem fór á EM í sumar.