02.08.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Maik Taylor til Birmingham. (Staðfest)
Birmingham hefur fengið markmann Fulham, Maik Taylor á árs láni. Taylor sem lék mikið síðasta tímabil með Fulham vegna meiðsla Edwin Van De Sar hefur misst byrjunarliðssæti sitt aftur til Hollendingsins. Aðalmarkmaður Birmingham, Nico Vaesen er meiddur og því var Ian Bennett eini markmaðurinn sem Steve Bruce hafði völ á þar til nú en líklegt þykir að Taylor verði í byrjunarliðinu á kostnað Bennett.
