Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 02. ágúst 2020 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Sky Sports 
Everton leggur fram tilboð í vinstri bakvörð Real Madrid
Sergio Reguilon.
Sergio Reguilon.
Mynd: Getty Images
Everton hefur lagt fram 18 milljón punda tilboð í Sergio Reguilon, vinstri bakvörð Real Madrid.

Reguilon var á láni hjá Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni á tímabilinu sem var að klárast og var hann kosinn besti vinstri bakvörður deildarinnar.

Leighton Baines lagði skóna á hilluna í síðustu viku og Carlo Ancelotti, stjóri Everton, vill fá mann inn í staðinn til að veita Lucas Digne samkeppni. Reguilon virðist vera sá maður.

Reguilon er í miklum metum hjá Real Madrid, en félagið er vel sett í stöðu vinstri bakvarðar með Marcelo og Ferland Mendy.

Sevilla mun væntanlega veita Everton keppni um þjónustu Reguilon og þá eru fleiri félög á Englandi áhugasöm um hann.
Athugasemdir
banner
banner