Fotbolti.net
02.10.22 - 19:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deildin: Danskir dagar í Úlfarsárdal

Jannik Pohl setti tvö

Jannik Pohl setti tvö

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram 3 - 2 Leiknir R.
0-1 Mikkel Dahl ('2)
1-1 Delphin Tshiembe ('13)
2-1 Jannik Pohl ('59)
3-1 Jannik Pohl ('70)
3-2 Emil Berger ('90, víti)
Rautt spjald: Óskar Jónsson, Fram ('88)

Fram vann virkilega sterkan sigur á Leikni á heimavelli í fyrstu umferð neðri deildarinnar í úrslitakeppni Bestu deildarinnar í dag.

Fram lenti 1-0 undir eftir aðeins tveggja mínútna leik þar sem Mikkel Dahl skoraði fyrir Leikni. Delphin Tshiembe jafnaði metin stuttu síðar en staðan var jöfn í hálfleik.

Jannik Pohl bætti tveimur mörkum við og kom Fram í góða stöðu. Fjögur mörk frá dönskum leikmönnum. Svíin Emil Berger minnkaði muninn af vítapunktinum fyrir Leikni en nær komust þeir ekki.

Fram er því komið með 28 stig, 9 stigum frá fallsæti. Leiknir er hins vegar í bullandi fallbaráttu, einu stigi frá fallsæti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.