Fotbolti.net
24.11.26 - 18:07
Brynjar Ingi Erluson

Frá Brentford til Svíþjóðar

Frá Brentford til Svíþjóðar
Canon

Mynd: Djurgården

Sænska stórliðið Djurgården hefur ráðið enska þjálfarann Sam Saunders sem nýjan þjálfara liðsins.
Djurgården lét finnska þjálfarann Jani Honkavaara taka poka sinn eftir vonbrigðatímabil þar sem liðið missti af lestinni í titilbaráttunni í Svíþjóð.

Í hans stað kemur Saunders, sem hefur undanfarin misseri þjálfað varalið Brentford með frábærum árangri. Undir hans stjórn vann liðið U21 árs deildina og tryggði sér sæti á ný í efstu deild þessa aldursflokks.

Þetta verður í fyrsta sinn sem Saunders tekur að sér þjálfun meistaraflokksliðs, en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við Djurgården.

Saunders er vel þekktur hjá Brentford og var tekinn inn í frægðarhöll félagsins eftir að hafa leikið yfir 200 leiki og átt þátt í að koma liðinu upp í ensku B-deildina áður en hann yfirgaf félagið árið 2017.

Djurgården er eitt stærsta félag Svíþjóðar og hefur tólf sinnum orðið sænskur meistari auk þess að vinna bikarkeppnina fjórum sinnum.

Félagið hefur hins vegar ekki unnið deildina í sjö ár og átta ár eru liðin frá síðasta bikarmeistaratitli. Það verður því hlutverk Saunders að koma Djurgården aftur á sigurbraut og í baráttuna um stærstu titlana.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.