Arnar hefur ekki hugsað út í landsleikjametið - „Ég var eiginlega búinn að steingleyma því"


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Aron Einar Gunnarsson landsliðsmaður er nálægt því að verða leikjahæsti leikmaður í sögu landsliðsins. Hann er með 110 landsleiki en Birkir Bjarnason er með metið með sína 113 landsleiki. Aron hefði því getað náð metinu með þáttöku í öllum fjórum leikjunum í þessari landsleikja pásu.
Hann hefur hins vegar ekkert komið við sögu, og hefur gefið út að þetta mót verður hans síðasta með landsliðinu. Hann þarf þá að koma við sögu í báðum leikjunum sem eftir er í þessum glugga og í báðum leikjunum sem fara fram í Nóvember.
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari, segist ekki hafa hugsað mikið út í þetta en væri hrifinn af því ef það myndi gerast.
„Nei eiginlega ekki, (haft metið bak við eyrað) ég var eiginlega búinn að steingleyma því. Þetta snýst ekkert um það, ég skil það mjög vel, þetta væri hrikalega stór stund ef þetta myndi gerast í þessum glugga og svo út Nóvember. En svoleiðis atriði má bara ekki hafa áhrif á okkar dómgreind sem er í þjálfarateyminu. Það er alls konar atriði sem skipta meira máli, en það væri frábært. Ég er mjög mikill rómantíkus í fóbolta, það væri geggjað ef hann myndi ná þessu leikjameti og við að fagna sigrinum í Nóvember eftir leik á móti Lúxemborg. En það veltur bara á ýmsu. Það er liðsheildin, og hvernig við förum að því að ná árangri sem skiptir öllu máli," sagði Arnar.


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
