Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 02. desember 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Fiorentina að kaupa Ikone frá Lille
Jonathan Ikone er á leið í Seríu A
Jonathan Ikone er á leið í Seríu A
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Fiorentina er í viðræðum við franska félagið Lille um kaup á Jonathan Ikone. Félagaskiptakóngurinn, Fabrizio Romano, greinir frá.

Franski landsliðsmaðurinn var frábær er Lille vann frönsku deildina á síðasta tímabili.

Hann á fjóra landsleiki að baki fyrir Frakkland en er nú farinn að hugsa sér til hreyfings.

Samkvæmt Romano hefur Fiorentina komist að samkomulagi við Lille um kaup á Ikone en kaupverðið er 15 milljónir evra.

Ikone hefur allan sinn feril spilað í Frakklandi en hann fór upp í gegnum akademíuna hjá PSG áður en Lille keypti hann árið 2018.
Athugasemdir
banner
banner
banner