03.03.18 - 06:00
Ingólfur Stefánsson
Elvar Ingi, Hafliði og Hlynur í Aftureldingu (Staðfest)

Elvar Ingi er kominn aftur í Aftureldingu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þeir Elvar Ingi Vignisson, Hafliði Sigurðsson og Hlynur Magnússon hafa allir gengið til liðs við Aftureldingu á láni fyrir komandi tímabil í 2. deildinni.
Elvar Ingi er framherji fæddur árið 1995 og er uppalinn hjá Aftureldingu. Hann kemur á láni frá Selfyssingum.
Elvar lék 19 leiki með Selfossi í Inkasso deildinni í fyrra og skoraði þrjú mörk.
Þar áður lék hann með ÍBV í Pepsi-deildinni 2016.
Hafliði og Hlynur eru báðir miðjumenn sem koma frá Fylki.
Hafliði var á láni hjá Aftureldingu á síðasa tímabili og skoraði eitt mark í tuttugu leikjum í 2. deildinni.

Allir leikmennirnir eru komnir með leikheimild fyrir leik Aftureldingar gegn Dalvík/Reyni í Lengjubikarnum í dag.

Hafliði Sigurðarson í leik með Aftureldingu í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson