03.03.18 - 23:00
Gunnar Logi Gylfason
Steve Cotterill rekinn frá Birmingham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Steve Cotterill hefur verið rekinn frá Birmingham City eftir fimmta tapleikinn í röð.
Liðið tapaði þá 2-1 fyrir Nottingham Forest og missti af tækifæri til að komast upp úr fallsæti.
Cotterill tók við liðinu í september eftir að Harry Redknapp var rekinn. Cotterill stýrði liðinu í 24 deildarleikjum en liðinu tókst aðeins að sigra í 6 þeirra.
Ásamt Cotterill eru margir sem koma að þjálfun aðalliðsins sem voru látnir fjúka.
Birmingham situr í 22.sæti Championship deildarinnar, tveimur stigum frá öruggu sæti. Liðin í kring eiga þó leik inni á liðið.