Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 03. maí 2021 14:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mbappe ferðaðist með til Manchester
Mynd: Getty Images
Kylian Mbappe er einn allra besti leikmaður heims. Hann er leikmaður PSG sem mætir Manchester City í Meistaradeildinni á morgun. Leikurinn er seinni undanúrslitaviðureign liðanna.

Mbappe er tæpur vegna kálfameiðsla og lék ekki með í sigri Lens í frönsku deildinni um helgina.

Mbappe ferðaðist með PSG til Manchester fyrir seinni leikinn gegn City og því ekki útilokað að hann spili á morgun.

City leiðir einvígið 2-1 eftir fyrri leikinn í París síðasta miðvikudag. Marquinhos, Kevin De Bruyne og Riyad Mahrez skoruðu mörkin.

Idrissa Gana Gueye verður ekki með PSG þar sem hann fékk að líta rauða spjaldið í fyrri leiknum.
Athugasemdir
banner
banner