Mist Funadóttir, bakvörður Þróttar, er sterkasti leikmaður 2. umferðar Bestu deildar kvenna í boði Steypustöðvarinnar. Hún var maður leiksins í glæsilegum sigri Þróttar gegn FH í Laugardalnum.
„Mist átti frábæran dag í vörn Þróttar. Var mjög grimm varnarlega og átti svo þátt í báðum mörkunum," skrifaði Snæbjört Pálsdóttir í skýrslu sinni frá leiknum.
„Mist átti frábæran dag í vörn Þróttar. Var mjög grimm varnarlega og átti svo þátt í báðum mörkunum," skrifaði Snæbjört Pálsdóttir í skýrslu sinni frá leiknum.
Hún hélt svo áfram og skrifaði:
„Átti sprett upp kantinn og fyrirgjöfina á Unni Dóru sem átti svo stoðsendinguna á Sigríði Theodóru sem skoraði fyrsta markið. Hún var síðan mjög fljót að hugsa þegar boltinn barst til hennar og þrumaði boltanum fram í hlaupaleiðina hjá Kaylu Rollins sem komst þá ein í gegn og gerði út um leikinn. Shout out á hana líka fyrir góða frammistöðu! Þetta er Kayla sem Þróttur þarf að fá í alla leiki í sumar!"
Mist, sem sneri aftur í Laugardalinn þar sem hún er uppalin, fyrir tímabilið í fyrra ræddi þá við Snæbjörtu eftir leikinn.
„Þetta er bara frábær tilfinning. Bara frábært að vinna á heimavelli, fullt af fólki í stúkunni og bara geðveikt," sagði Mist og var svo spurð út í sigurmarkið.
„Já ég var bara að miða alveg þarna á frábærum stað. Ég svona ætlaði að hreinsa en svona þetta var nákvæm hreinsun.“


