Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   þri 03. júní 2025 10:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Margar breytingar á U19 hópnum - Leik í Lengjudeildinni frestað
Christian Bjarmi.
Christian Bjarmi.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Gabríel Aron.
Gabríel Aron.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Að minnsta kosti fjórar breytingar hafa verið gerðar á hópi U19 landsliðsins sem mætir því enska á föstudaginn.

Christian Bjarmi Alexandersson (Grindavík), Styrmir Jóhann Ellertsson (ÍA), Gabríel Aron Sævarsson (Keflavík) og Freysteinn Ingi Guðnason (Njarðvík) hafa verið kallaðir inn í hópinn vegna meiðsla leikmanna sem voru upprunalega valdir í hópnum.

Ekki hefur verið gefið út hvaða leikmann það eru sem glíma við meiðsli.

Christian Bjarmi (2007) gæti spilað sinn fyrsta leik í íslensku treyjunni á föstudaginn og sömu sögu er að segja af Gabríel Aroni (2006).

Styrmir Jóhann (2008) hefur leikið með U16 og U17 og Freysteinn Ingi (2007) hefur spilað með U15, U16 og U17.

Þegar Christian Bjarmi var kallaður inn í hópinn óskaði Grindavík eftir því að fá leik sínum við Keflavík frestað og fékk þá ósk uppfyllta.

Liðin munu því ekki mætast annað kvöld eins og áætlað var.

Þórhallur Siggeirsson er þjálfari U19 liðsins sem kemur saman á Englandi í dag.

6. umferðin í Lengjudeildinni
19:15 Njarðvík-Fjölnir (JBÓ völlurinn)
19:15 HK-Selfoss (Kórinn)
19:15 ÍR-Þróttur R. (AutoCenter-völlurinn)
19:15 Fylkir-Leiknir R. (tekk VÖLLURINN)
19:15 Þór-Völsungur (Boginn)
FRESTAÐ Grindavík-Keflavík (Stakkavíkurvöllur)
Athugasemdir