Fotbolti.net
03.07.12 - 13:20
Elvar Geir Magnússon

Villas-Boas ráðinn stjóri Tottenham (Staðfest)

Sagt að Gylfi verði kynntur á morgun

Villas-Boas ráðinn stjóri Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Andre Villas-Boas hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Tottenham. Þessi 34 ára stjóri hefur skrifað undir þriggja ára samning við Tottenham fjórum mánuðum eftir að hann var rekinn frá Chelsea.
Villas-Boas var rekinn frá Chelsea í mars en hann mun stýra Tottenham gegn liðinu þann 20. október.

Harry Redknapp var rekinn sem knattspyrnustjóri Tottenham fyrir nokkrum vikum eftir ósætti við stjórnarformann félagsins.

Staðreyndir um Villas-Boas
1977: Fæddist í Porto í október
1993: Vann sem lærlingur hjá Sir Bobby Robson í Porto
1994: Fékk UEFA C þjálfaragráðu í Skotlandi
2002: Var ráðinn í þjálfaralið Jose Mourinho hjá Porto
2004: Fylgdi Mourinho til Chelsea
2008: Fylgdi Mourinho til Inter
2009: Ráðinn aðalþjálfari Academica
2010: Ráðinn aðalþjálfari Porto
2011: Vann deildina, bikarinn og Evrópudeildina á fyrsta tímabili
2011: Ráðinn stjóri Chelsea
2012: Rekinn frá Chelsea eftir 257 daga Stamford Bridge

Samkvæmt frétt Morgunblaðsins í morgun mun Gylfi Þór Sigurðsson fylgja Villas-Boas til Tottenham og er búist við því að hann verði kynntur sem leikmaður félagsins á morgun.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.