Fotbolti.net
03.07.12 - 19:28
Daníel Freyr Jónsson

Nuno Gomes til Blackburn (Staðfest)

Nuno Gomes.

Nuno Gomes.

Canon

Mynd: Getty Images

Blackburn hefur fengið til sín Portúgalan Nuno Gomes á frjálsri sölu.
Gomes, sem á að baki 79 landsleiki fyrir þjóð sína, spilar sem framherji og hefur skorað yfir 200 mörk á löngum ferli sínum.

Lengst af lék hann með Benfica, en hann lék með Braga í vetur. Áður var hann til mála hjá Fiorentina.

Þessi 35 ára gamli framherji er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir Blackburn á síðustu dögum, en í gær var tilkynnt um komu Leon Best frá Blackburn. Að auki hafði Danny Murhpy þegar gengið í raðir Blackburn, sem féll úr úrvalsdeildinni í vetur.

Gomes skrifaði undir tveggja ára samning á Ewood Park.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.