Fotbolti.net
03.07.12 - 19:08
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Paul Pogba til Juventus (Staðfest)

Paul Pogba

Paul Pogba

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska meistaraliðið Juventus hefur fengið franska miðvallarleikmanninn Paul Pogba frá Manchester United, en þetta staðfesti enska liðið í dag.
Pogba, sem er 19 ára gamall kom til Manchester United árið 2009 frá Le Havre og gerði í kjölfarið þriggja ára samning við félagið.

Snemma á árinu fóru orðrómar af stað að ítalska félagið Juventus ætlaði sér að fá Pogba, þar sem félagið gat fengið hann á frjálsri sölu í sumar. United ákvað í kjölfarið að sýna franska leikmanninum þá tryggð með því að gefa honum fleiri tækifæri með aðalliðinu.

Fótbolti.net greindi frá því mars að Pogba væri búinn að semja við Juventus og ætti aðeins eftir að ganga frá samningum, en þá greindi vefurinn frá því að hugur hans væri kominn til Ítalíu.

Í dag var svo staðfest að Pogba hafi samið við Juventus, en samningurinn kemur til með að vera til næstu fjögurra ára. Hann verður því enn ein viðbótinn í sumar hjá Juventus, en liðið hefur þegar fengið Mauricio Isla, Kwadwo Asamoah, Martin Caceres og Nicola Leali.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.