Greint hefur verið frá því að Diogo Jota hafi verið á leið til Santander á Spáni til að taka næturferju yfir til Bretlands þegar hann lenti í bílslysinu.
Undirbúningstímabil Liverpool hefst á næstu dögum og Jota hafði verið ráðlagt að forðast flugferðir vegna lungnaaðgerðir sem hann gekkst undir.
Undirbúningstímabil Liverpool hefst á næstu dögum og Jota hafði verið ráðlagt að forðast flugferðir vegna lungnaaðgerðir sem hann gekkst undir.
Bróðir hans, André Silva, ætlaði með honum til Bretlands og þeir voru saman í Lamborghini bifreiðinni sem endaði utan vegar. Bifreiðin varð alelda og þeir voru báðir úrskurðaðir látnir á staðnum þegar björgunaraðilar mættu.
Jota var 28 ára og var ríkjandi Englandsmeistari með Liverpool. Hann vann einnig FA-bikarinn og deildabikarinn með liðinu og Þjóðadeildina með portúgalska landsliðinu.
Athugasemdir